Ályktun um ljósmæður
Mar 22, 2018
1 min read
Alþýðufylkingin lýsir yfir fullum stuðningi við kjarabaráttu ljósmæðra. Það er ótækt að hjúkrunarfræðingar lækki í launum við að bæta við sig ljósmóðurnámi. Auk þess að vera ósanngjarnt, grefur það undan endurnýjun í starfsstéttinni og þar með fæðingaþjónustu í samfélaginu. Framkvæmdastjórn Alþýðufylkingarinnar 19. mars 2018















Comments