top of page
Sósíalismi í einu sveitafélagi 2018

Sósíalismi í einu sveitarfélagi

Jöfnuður – velferð – félagslegar lausnir
Borgarmálastefnuskrá Alþýðufylkingarinnar 2018

Stefna Alþýðufylkingarinnar í sveitarstjórnar-
málum byggir á því meginsjónarmiði sam-
takanna að skilyrði fyrir auknum jöfnuði, lýð-
ræði og velferð og lífsgæðum alþýðunnar sé
aukið vægi hins félagslega á kostnað markaðs-
væðingar. Alþýðufylkingin lítur ekki á félags-
legar lausnir sem ölmusu til fátæklinga eins
og títt er, heldur leiðir til að leysa samfélags-
leg mál án þess að auðmenn geti haft þau að
féþúfu. Þannig eru félagslegar lausnir almennt
til mikils sparnaðar fyrir samfélagið og koma í
veg fyrir fátækt, frekar en að vera kostnaðar-
söm viðbrögð við fátækt eins og oft heyrist.
Með samþættingu ólíkra málaflokka er hægt
að ná betri árangri bæði fyrir velferð einstak-
linganna og samfélagið. Það er t.d. óþolandi
að geðfatlaðir komist ekki út af stofnunum
vegna húsnæðisleysis og bati þeirra sé þannig
hindraður og þeim jafnvel valdið afturför, um
leið og dýrmæt stofnanapláss eru tekin frá
öðrum sem þurfa á þeim að halda.
Þó málefnum sveitarfélaga sé að ýmsu leyti
þröngur stakkur skorinn, þar eð verkefni
þeirra og tekjustofnar eru að drjúgum hluta

 

ákveðin af ríkisvaldinu, eru ýmsir möguleikar
til samfélagsbreytinga á sveitarstjórnarstiginu
ef andi og viðleitni Alþýðufylkingarinnar
ræður ferðinni og fjöldinn fylgir henni eftir.
Við eigum ekki að láta eins og það skipti litlu
hvernig er stjórnað meðan við bíðum eftir
byltingunni. Lífið hefst ekki þá, heldur þarf
alþýðufólk að lifa og þrífast þangað til það
getur tekið öll völd í landinu og loksins gerst
húsbændur á eigin heimili.

Berskjaldaða fólkið okkar
Börn

Lág laun standa leikskólakerfinu fyrir þrifum.
Það á að hækka þau til muna um leið og gera
þarf meiri hæfniskröfur til starfsfólks, því til
að bera uppi faglegt uppeldis- og mennta-
starf fyrir ung börn þarf nóg af faglærðu
starfsfólki. Við viljum að leikskólapláss séu
tryggð fyrir öll börn sem eru orðin tveggja
ára. Fyrir börn sem eru yngri er best að vera
sem mest hjá foreldrum sínum. Á meðan
fæðingarorlof nær ekki tveim árum þarf þó
að brúa bilið með því að byggja ungbarna-
leikskóla og leggja mikinn metnað í notalegt
umhverfi fyrir þau yngstu. Í fyllingu tímans
munu húsin nýtast vel, því þá má fækka
börnum á hverri deild og sinna hverju og
einu betur. Borgin á líka að byggja upp fram-
boð á þægilegum og áhugaverðum stöðum
þar sem foreldrar í fæðingarorlofi geta dval-
ið og hitt aðra.
Í grunnskólum þurfa laun kennara að hækka
og starfsaðstæður að batna, m.a. með minni
bekkjum svo meiri tími gefist fyrir hvern og
einn nemanda. Auka þarf áhrif foreldra á
stjórnun skóla. Bækur og önnur námsgögn
eiga að vera endurgjaldslaus, sem og heitar
máltíðir í hádeginu fyrir öll börn.
Taka verður upp sérstaklega metnaðarfulla
stefnu fyrir skólabörn með annað móðurmál
en íslensku til þess að tryggja velferð þeirra.
M.a. þarf að tryggja kennslu í móðurmáli
þeirra og tryggja foreldrum þeirra aðgang að
upplýsingum og þjónustu á máli sem þau
skilja.
Foreldrar barna með sérstakar þarfir skulu í
samráði við skólayfirvöld hafa val um hvort
þau senda börn sín í skóla án aðgreiningar

Þorvaldur Þorvaldsson trésmiður
formaður og oddviti
Alþýðufylkingarinnar

eða sérskóla sem sniðinn er fyrir þeirra þarfir.
Til þess að það sé í alvörunni val, þarf hvort
tveggja að vera vel fjármagnað, því sérþörfum
er ekki hægt að mæta almennilega í fjársvelti.
Þjónustusamningar borgarinnar við einkaskóla
eiga að vera bundnir þeim lágmarksskilyrðum
að ekki sé greiddur út arður af rekstri þeirra og
launastefna þeirra sé í samræmi við
launastefnu borgarinnar.

Velferðarmál

Til að hámarka velferð íbúanna á borgin að láta til sín taka við að koma í veg fyrir fátækt með
öllum ráðum og mæta þörfum fólksins þar sem þær eru. Framfærslustyrkur þarf að hækka
þannig að hægt sé að lifa á honum. Sem flestum þarf að hjálpa til að geta framfleytt sér af
eigin rammleik.
Aflétta þarf átthagafjötrum fátækra með því að fella niður skilyrði um að hafa búið í sveitar-
félaginu ákveðinn tíma til að eiga rétt á félagslegu húsnæði eða öðrum velferðarstuðningi.
Íbúar sem vegna fötlunar eða heilsuleysis búa í búsetuúrræðum á vegum borgarinnar eiga að
jafnaði að ráða sem mestu sjálfir um líf sitt og njóta friðhelgi einkalífs.
Borgin á að koma upp endurhæfingarúrræði fyrir fólk sem þarf að læra að fóta sig í lífinu eftir óreglu og/eða afbrot frá unglingsárum. Reykjavík á að koma upp mannsæmandi aðstöðu fyrir hælisleitendur, svo þeir geti notið fullra mannréttinda meðan þeir dvelja hér. Borgin þarf að taka til þeirra ráða sem hún hefur til að aflétta heimsóknabanni, einangrun og annarri vanvirðandi eða ómannúðlegri meðferð.

Samgöngu- og skipulagsmál
Samgöngumál

Leggja þarf áherslu á að efla almenningssam-
göngur og gera notkun þeirra aðgengilegri. Þær
verða að vera félagslega reknar á hagkvæman
hátt og gjald fyrir notkun þeirra að vera mjög
lágt, helst ekkert. Vegna þess að það er allra
hagur að þær séu aðlaðandi, þurfa ökutæki að
vera góð, tímatöflur og leiðakerfi að ganga upp
og ferðir að vera á réttum tíma.
Góðar og skilvirkar almenningssamgöngur til
framtíðar gætu falist í rafknúnu lestakerfi sem
gæti verið neðanjarðar að hluta, eftir landslagi
og þéttleika byggðar, til að leiðir séu greiðari.
Alþýðufylkingin styður að Reykjavíkurflugvöllur
verði í Vatnsmýrinni um fyrirsjáanlega framtíð
eða þar til önnur og betri lausn finnst á hlutverki
hans.
Reykjavíkurborg á að hreinsa götur og
gangstéttar oftar.

Skipulagsmál

Vernda þarf ásýnd og mannvirki eldri hverfa almennilega og fara af mikilli varúð í breytingar, sérstaklega ef um niðurrif er að ræða. Koma verður í veg fyrir að auðmenn geti yfirtekið skipulagsvaldið í krafti lóðaeigna og knúið fram byggingamagn sem umturnar byggðinni reglulega og ber nágranna ofurliði í þeim tilgangi einum að tryggja auðmönnum hámarksgróða.

Þétting byggðar á ekki að fela í sér að öllu sé hrúgað í gömul, viðkvæm hverfi heldur þarf að huga að því að öll hverfi þróist þannig að gott verði að búa þar og þjónusta haldist þar við. Einnig er mikilvægt að alls staðar sé stutt í aðlaðandi útivistarsvæði fyrir börn og fullorðna.

Húsnæðismál

Húsnæði er lífsnauðsyn, sem samfélagið á að koma í veg fyrir að auðmenn hafi að féþúfu.

 

Borgin á að taka frumkvæði að bæði bygg-ingarframkvæmdum og húsnæðiskaupum og auka íbúðarhúsnæði á sínum vegum og sem rekið er félagslega, til þess að tryggja hag-stæðasta verð fyrir fólkið, ekki bara þá sem spjara sig ekki á almennum markaði, heldur eiga allir sem vilja að geta fengið félagslega rekið íbúðarhúsnæði við hæfi. Stefna ber að því að að jafnaði sé framboð á íbúðarhúsnæði aðeins meira en eftirspurn, bæði til að geta betur mætt óvæntum áföllum (á borð við Vestmannaeyjagos) og til þess að skortur þrýsti ekki húsnæðisverði óeðlilega langt upp.

 

Vaxtaokur er einn aðalvandinn í húsnæðis-málum og til að leysa hann á borgin að gang-ast fyrir stofnun félagslega rekinnar lána-stofnunar, sem verði hvorki rekin í gróðaskyni né sem ölmusa, heldur sem þjónusta við alla borgarbúa. Borgin ætti sjálf að fá lánaþjónustu og aðra fjármálaþjónustu hjá félagslega reknu fjármálafyrirtæki, og losna þannig við kostnað af vöxtum.

Borgin þarf að tryggja nóg framboð á litlum, ódýrum lóðum og lækka lóðaverð og til að fleiri geti byggt en stórfyrirtæki í byggingariðnaði.

Umhverfis- og auðlindamál

Alþýðufylkingin berst gegn allri markaðsvæðingu, einkavæðingu og rányrkju á auðlindum náttúrunnar. Félagslega rekin orkufyrirtæki eiga að sjá fyrir orku og hreinu og ómenguðu vatni á eins hagstæðan hátt og mögulegt er. Úthýsa þarf sérhagsmunum og gildismati auðvaldsins.
Stöðva skal útþenslu í nýtingu háhitasvæða í nágrenni Reykjavíkur, þar sem af henni hlýst veruleg mengun og annar umhverfisvandi, og mikil orka fer í súginn með heitu afgangsvatni við raforkuframleiðslu úr jarðhita. Auka má nýtingu á því heita vatni sem þegar fellur til með aukinni ræktun í gróðurhúsum í landi borgarinnar og nágrenni. Þannig má auka matvælaframleiðslu í nánd við þéttbýlið, auka atvinnu og innlenda verðmætasköpun og spara flutninga. Heitt afgangsvatn ætti líka að nýta meira í bræðslulagnir undir gangstéttum og götum. Orkuveitan á að byggja alþjóðlega samvinnu um nýtingu jarðhita á þeirri meginreglu að auðlindirnar og nýting þeirra séu í félagslegri
eigu. Sé það uppfyllt á ráðgjöf Orkuveitunnar að lúta lögmálum viðskipa með þjónustu eða
þróunarsamvinnu.
Við viljum draga úr flugeldasprengingum og tilheyrandi loft- og hávaðamengun í kring um áramót, með því að borgin leggi björgunarsveitunum til peninga svo þær séu ekki háðar flugeldasölu og með því að hún haldi sínar eigin flugeldasýningar í stað þess að allur almenningur sé skjótandi upp
sprengjum.

Starfsfólkið okkar
Kjaramál

Alþýðufylkingin vill innleiða vinnustaðalýðræði þar sem það er hægt, svo við viljum m.a. að borgin setji reglur um að starfsfólk á vinnustöðum borgarinnar geti sett næstu yfirmenn sína af ef það er nauðsynlegt, að starfsemi og bókhald stofnana borgarinnar verði gegnsæ, að starfsfólk geti sjálft sett vinnustöðum sínum jafnréttistefnu, umhverfisstefnu o.s.frv.

Laun borgarstarfsmanna, embættismanna borgarinnar og kjörinna fulltrúa á að jafna þannig að munur á hæstu og lægstu launum verði ekki meiri en tvöfaldur. Borgin á að útrýma kynbundnum launamun hjá sér með gegnsæju launakerfi.

Atvinnumál

Borgin á að taka frumkvæði í margs konar verð-
mætaskapandi atvinnurekstri í framleiðslu og
þjónustu, þar á meðal bæjarútgerð. Þannig má
auka tekjumöguleika borgarinnar og um leið
skapa störf við hæfi fyrir þá sem eiga erfitt
uppdráttar á almennum vinnumarkaði.

 

Fólki af erlendum uppruna þarf að tryggja jafn-
an aðgang og öðrum, að störfum sem hæfa
menntun þeirra og hæfni.

 

Borgin taki aftur til sín rekstur sem hefur
verið einkavæddur undanfarna áratugi eftir
því sem við verður komið, svo sem akstur
strætisvagna, snjómokstur, malbikun, sorp-
hirðu, ýmislegt viðhald o.s.frv.

 

Innkaupastefna

Reykjavíkurborg á að beina viðskiptum sínum
eins og kostur er burt frá fyrirtækjum eða
ríkjum sem fremja svívirðu, svo sem með
ólöglegu hernámi, þjóðarmorðum eða
stórfelldum umhverfisspjöllum.

Þessi stefnumál eru ekki listi af
loforðum sem við ætlum að efna
bara ef við fáum hreinan meiri-
hluta í borgarstjórn, heldur
baráttumarkmið fyrir reykvíska
alþýðu.
Alþýðan hefur aldrei fengið neitt
gefins, heldur hefur hún barist
fyrir öllu sínu og mun þurfa að
gera það áfram meðan við búum í
stéttskiptu samfélagi.
Hver á að ráða þessu landi? Verið
með í baráttunni um ykkar eigin
framtíð!
Alþýðufylkingin er vinstriflokkur
sem leggur áherlu á að virkja
alþýðuna til baráttu gegn alræði
auðstéttarinnar.

Lykillinn að breyttu samfélagi
almenningi til hagsbóta er
félagsvæðing fjármálakerfisins
og annarra innviða samfélagsins.

Leggðu lóð þitt á vogarskálina
og hafðu samband við
Alþýðufylkinguna.

Formaður:
Þorvaldur Þorvaldsson s. 8959564
vivaldi@internet.is

Varaformaður:
Vésteinn Valgarðsson s. 8629067
vangaveltur@yahoo.com
bottom of page