top of page

Októberbyltingin 100 ára

Hátíðarfundur í Iðnó þriðjudaginn 7. nóvember kl. 20 Pólitísk menningardagskrá í boði Alþýðufylkingarinnar, MFÍK, MÍR og Sósíalistaflokks Íslands Aðgangur ókeypis, en frjálsum framlögum safnað á staðnum. Fyrir 100 árum var Rússland í djúpri alhliða kreppu í miðri heimsstyrjöld. Baráttan gegn stríðinu og þrengingum alþýðunnar náði hámarki þegar 2. Sovétþingið tók völdin 7. nóvember, og hóf að knýja fram friðarsamning og félagsvæðingu í samfélaginu. Þetta er einhver merkasti og áhrifamesti atburður seinni tíma sögu, og veitti innblástur fyrir baráttu verkalýðsins um allan heim fyrir sósíalisma og bættum kjörum. Októberbyltingin hefur haft áhrif á framvindu sögunnar æ síðan. Þó að beinir ávinningar hennar hafi tapast um tíma að verulegu leyti, er hún mikil uppspretta lærdóma í verkalýðsbaráttunni og verður um ókomna tíð. Á þessum tímamótum hafa fern samtök, Alþýðufylkingin, MFÍK, MÍR og Sósíalistaflokkur Íslands tekið sig saman um að minnast byltingarinnar á hátíðarfundi í Iðnó, þriðjudaginn 7. nóvember kl. 20 Kynnir er Árni Hjartarson Ávörp flytja: Skúli Jón Unnarson Sólveig Anna jónsdóttir Vésteinn Valgarðsson Sólveig Hauksdóttir les ljóð Gunnar J Straumland kveður frumsamið efni Tónlist: Svavar Knútur Þorvaldur Örn Árnason Þorvaldur Þorvaldsson


Featured Posts
Recent Posts
Archive
Search By Tags
No tags yet.
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page