Alþýðufylkingin boðar félagsfund á föstudaginn
- thoddi3
- Oct 18, 2017
- 1 min read
Alþýðufylkingin heldur opinn félagsfund á föstudagskvöld, 20. október, kl. 20 uppi í Friðarhúsi (Njálsgata 87, 101 Reykjavík).
Dagskráin verður ekki stíf, það verður farið yfir stöðuna í kosningabaráttunni, verkefnin framundan og rætt um stefnu flokksins o.fl.
Kaffi og góðar hugmyndir munu flæða, en áfengir drykkir munu ekki flæða.
Nýir félagar eru velkomnir, sem og aðrir sem hafa áhuga á að koma.
Nasistar og barnaníðingar eru ekki velkomnir.
Það má finna Facebook viðburðinn hér.

Komentáře