top of page

Alþýðufylkingin býr sig undir kosningar

Það kom flatt upp á okkur í Alþýðufylkingunni, eins og sjálfsagt flesta landsmenn, að boðað skyldi til kosninga með svo skömmum fyrirvara. Okkar skjótu hendur vinna nú að því að undirbúa framboð en eins og öllum má vera ljóst erum við lítill flokkur og höfum hvorki launaða starfsmenn á okkar snærum né höfum við digra sjóði að ganga í. Við biðjum fólk því að styðja okkur, ekki aðeins með því að kjósa okkur í haust, heldur og með því að gefa kost á sér á framboðslista, að hjálpa til við að safna undirskriftum meðmælenda, styrkja okkur fjárhagslega (reikn.nr. 0101-26-011133, kt. 580113-2140) og að hjálpa okkur að kynna málstað okkar.

Vésteinn Valgarðsson

varaformaður Alþýðufylkinga

rinnar

Featured Posts
Recent Posts
Archive
Search By Tags
No tags yet.
Follow Us
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square
  • Google+ Basic Square
bottom of page