top of page

Lög AF-H

1. gr.  Félagið heitir Alþýðufylkingin á höfuðborgarsvæðinu. Félagið er aðildarfélag Alþýðufylkingarinnar í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi

Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík.

 

2. gr.  Aðild að félaginu eiga allir skráðir félagar í Alþýðufylkingunni, sem búa á félagssvæðinu.  Félagið starfar samkvæmt lögum og markmiðum Alþýðufylkingarinnar og vinnur að uppbyggingu flokksins, og framgangi stefnu og málefna hans á félagssvæðinu, svo sem með starfi félaga innan fjöldahreyfinga (þ.á.m. stéttarfélaga), á fjöldasamkomum og í kröfugöngum, en einnig fræðslustarfi, undirbúningi fyrir alþingiskosningar o.fl.  Félagsmenn í einstökum sveitarfélögum geta stofnað með sér deildir innan félagsins.  Fara þær með staðbundin mál, þ.m.t. framboð til sveitarstjórna, í samráði við stjórn félagsins.

 

3. gr.  Aðalfundur skal haldinn árlega, fyrir lok marsmánaðar, og skal boðað til hans skriflega og/eða með rafrænum samskiptum með þriggja vikna fyrirvara.  Aðalfundur telst löglegur sé löglega til hans boðað.

Auk þess skulu haldnir félagsfundir eftir þörfum að frumkvæði stjórnar eða samkvæmt ósk tveggja félagsmanna.

Félagsfundur getur boðað til aukaaðalfundar, enda komi það fram í fundarboði.

 

4. gr.  Aðalfundur kýs fimm manna stjórn félagsins og skiptir hún með sér verkum.  Að auki skal kjósa einn varamann í stjórn.

Stjórn félagsins ber ábyrgð á starfsemi þess og framkvæmir samþykktir aðalfundar og félagsfunda.  Stjórnin skipar starfshópa og boðar til umræðufunda um þau mál sem snerta stefnumörkun og störf félagsins.

Aðalfundur kýs enn fremur:

a) Tvo skoðunarmenn reikninga.

b) Tvo fulltrúa í miðstjórn flokksins. 

 

5. gr.  Í aðdraganda kosninga til Alþingis eða sveitarstjórna ákveður aðalfundur eða félagsfundur, sem sérstaklega er boðað til, hvernig staðið skuli að röðun á framboðslista flokksins á félagssvæðinu.

Fundurinn getur eftir atvikum ákveðið að fela stjórn félagsins eða sérstaklega kjörinni uppstillingarnefnd þetta hlutverk.

Framboðslisti skal borinn undir félagsfund, sem tekur endanlega ákvörðun um skipan hans.

 

6. gr.  Félagið heldur utan um félagatal flokksins á félagssvæðinu, í samstarfi við ritara flokksins.

Félagið innheimtir árgjald af félögum á félagssvæðinu, í samstarfi við gjaldkera flokksins. Reikningsár félagsins er almanaksárið.

 

7. gr.  Almennt ræður einfaldur meirihluti við atkvæðagreiðslur á fundum félagsins.  Falli atkvæði jafnt ræður atkvæði formanns.

 

8. gr.  Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi af 2/3 hlutum greiddra atkvæða. Lagabreytingartillögur skal kynna félögum með viku fyrirvara fyrir fundinn. Lögin og lagabreytingar öðlast þegar gildi.

 

9. Komi fram tillaga um slit félagsins, skal hún lögð fyrir aðalfund eða aukaaðalfund. Til að samþykkja hana þarf minnst helmingur félagsmanna að samþykkja. Sé ekki nægileg fundarsókn skal boða framhaldsaðalfund innan tveggja vikna og getur hann afgreitt tillöguna óháð fundarsókn. Verði félaginu slitið renna eigur þess til Alþýðufylkingarinnar.

 

 

Svo samþykkt á stofnfundi Alþýðufylkingarinnar á höfuðborgarsvæðinu 18. febrúar 2017.

bottom of page